Innlent

Konunni haldið sofandi

Slæmt veður var á Hellisheiðinni þegar slysið átti sér stað.
Slæmt veður var á Hellisheiðinni þegar slysið átti sér stað. Mynd/SÓ
Ástand konunnar sem slasaðist alvarlega í árekstri tveggja bíla á Hellisheiði á fjórða tímanum í gær er óbreytt. Henni er haldið sofandi í öndunarvél að sögn vakthafandi læknis á Landspítalanum. Slysið varð með þeim hættti að tveir fólksbílar, sem voru að koma úr gagnstæðri átt, skullu saman. Í öðrum bílnum voru tveir farþegar með ökumanni, og voru meiðsl þeirra ekki talin alvarleg. Í hinum bílnum var konan ein á ferð, og er hún alvarlega slösuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×