Lífið

Konunglegt brúðkaup í Svíþjóð næsta sumar

Atli Ísleifsson skrifar
Carl Philip og Sofia eru mjög hamingjusöm.
Carl Philip og Sofia eru mjög hamingjusöm. Vísir/AFP
Sænski prinsinn Carl Philip og Sofia Hellquist, unnusta hans, munu ganga upp að altarinu laugardaginn 13. júní næsta sumar. Þetta tilkynnti sænska hofið nú fyrir stundu.

Athöfnin mun fara fram í Slottskyrkan við Konungshöllina í Stokkhólmi.

„Við hlökkum til að vera með sumarbrúðkaup í miðjum júnímánuði, á þeim tíma þegar mjög fallegt er í Svíþjóð. Þetta verður merkisdagur í okkar lífi og við erum mjög ánægð,“ segja turtildúfurnar í tilkynningu.

Fyrstu fréttir af sambandi prinsins og fyrirsætunnar Sofiu bárust í aprílmánuði 2010. Tilkynnt var um trúlofun parsins þann 27. júní síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×