Lífið

Komin þrjá mánuði á leið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Zoe Saldana á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Marco Perego. Þetta kemur fram í tímaritinu Us Weekly.

„Zoe er komin um þrjá mánuði á leið. En hún tilkynnir þetta þegar hún er tilbúin,“ segir heimildarmaður tímaritsins. Annar heimildarmaður segir að hjónin geti ekki beðið eftir því að verða foreldrar.

„Zoe hefur alltaf langað í stóra fjölskyldu og Marco hugsar á sömu nótum.“

Fréttir af brúðkaupi Zoe og Marco bárust í september í fyrra en mikil leynd hvíldi yfir stóra deginum. Þau sáust fyrst saman opinberlega á viðburði í New York í apríl síðastliðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×