Bílar

Komið nafn og merki á bílaþátt gömlu Top Gear stjarnanna

Finnur Thorlacius skrifar
Loks er komið heiti á nýjum bílaþáttum gamla þríeykisins, "The Grand Tour".
Loks er komið heiti á nýjum bílaþáttum gamla þríeykisins, "The Grand Tour".
Sjaldan hefur tekið eins langan tíma að finna nafn á einn sjónvarpsþátt og í tilfelli nýs bílaþáttar fyrrum stjórnenda Top Gear þáttanna. Sá titill er þó loks fundinn og þátturinn á að heita “The Grand Tour”. Á titillinn að vera lýsandi fyrir það hve víða þeir félagar fara til að prófa þá bíla sem sjást í þáttunum.

Þeir Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May eru langt komnir með að taka upp nýja þætti sem sýndir verða á Amazon Prime og hefjast sýningar á þeim í haust, eftir síðustu heimildum.

Ekki bara fundu þeir félagar heiti á þættinum heldur er einnig komið merki fyrir hann. Ekki fer frá því að útlit þess sé sótt í útlit merkja áttunda eða níunda áratugs síðustu aldar, en engu að síður er það flott.

Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May stjórna "The Grand Tour" á Amazon Prime.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×