Lífið

Klukkutími hjá atvinnukúrara á 7.500 kall

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Klukkutímalangt kúr felur meðal annars í sér að haldast í hendur, strjúka hár hvors annars og alls konar knús- og kúrstellingar.
Klukkutímalangt kúr felur meðal annars í sér að haldast í hendur, strjúka hár hvors annars og alls konar knús- og kúrstellingar. Vísir/Getty
Þeir sem ferðast til Portland í Oregon-fylki í Bandaríkjunum gætu kíkt við í búð Samönthu Hess, Cuddle Up To Me. Þar selur Samantha knús og kúr í klukkutíma fyrir aðeins 60 dollara, eða sem samsvarar 7500 íslenskum krónum.

Búðin er nýopnuð og hefur farið vel af stað. Í samtali við fréttamiðilinn Fox 12 segir Samantha að hún hafi fengið hátt í 10.000 tölvupósta á fyrstu vikunni.

Klukkutímalangt kúr felur meðal annars í sér að haldast í hendur, strjúka hár hvors annars og alls konar knús- og kúrstellingar.

Búðin er opin mánudaga til laugardaga. Það má líka spjalla og viðskiptavinir eru hvattir til að vera í náttfötum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×