Innlent

Kjörstaður fyrir forsetakosningarnar opnaður í Annecy

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jón Daði Böðvarsson og Eiður Smári Guðjohnsen spila snóker á hótelinu í Annecy. Ef þeir eiga eftir að kjósa geta þeir gert það í fjallabænum fallega á morgun.
Jón Daði Böðvarsson og Eiður Smári Guðjohnsen spila snóker á hótelinu í Annecy. Ef þeir eiga eftir að kjósa geta þeir gert það í fjallabænum fallega á morgun. vísir/vilhelm
Opnaður verður kjörstaður í Annecy í kvöld þar sem strákarnir okkar dvelja á meðan keppni á EM fer fram. Það er gert til þess að þeir landsliðsmenn sem eigi eftir að kjósa í forsetakosningunum sem fram fara á laugardag geti gert það en auk þeirra dvelja margir fjölmiðlamenn í Annecy auk einhverra vina og fjölskyldna strákanna okkar.

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er hægt að kjósa víða í Frakklandi en mikilvægt er að hafa í huga að fólk þarf sjálft að sjá um að koma atkvæðinu sínu á kjörstað í réttu kjördæmi fyrir lokun kjörstaða á laugardaginn. Það þarf því að finna einhvern sem er á leiðinni heim til Íslands á morgun eða laugardag sem getur tekið atkvæðið fyrir mann og komið því á réttan stað.

Þannig hafa stuðningsmenn Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda tekið sig saman um að aðstoða stuðningsfólk landsliðsins við að koma utankjörstaðaratkvæðunum til Íslands og á réttan stað. Þeir hvetja Íslendinga í Frakklandi til að kjósa í sendiráðinu í París eða í Annecy og koma svo umslaginu til stuðningsmanns á heimleið. Stuðningsfólk Höllu mun svo koma þeim umslögunum sem berast á rétta kjörstaði.  

Í samtali við Vísi segir Urður Gunnarsdóttir upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins að það hafi verið stöðugur straumur af fólki í sendiráðinu í París í dag sem kom til að kjósa en hér á heimasíðu utanríkisráðuneytisins má nálgast upplýsingar um alla kjörstaði í Frakklandi.


Tengdar fréttir

Tæplega helmingur segist styðja Guðna

Þótt fylgi við Guðna Th. Jóhannesson haldi áfram að minnka hefur hann enn ríflegt forskot á aðra frambjóðendur. Halla Tómasdóttir bætir við sig 10 prósentum í nýrri könnun. Andri Snær og Davíð Oddsson eru nánast jafnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×