Lífið

Kim og Kanye svöruðu spurningum um íslenskan mat: „Ég hélt mig við franskar kartöflur“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Íslandsvinirnir og hjónakornin Kim Kardashian og Kanye West létu sig ekki vanta á Met Gala í gær, einn helsta viðburðinn í félagslífi ríka og fræga fólksins í New York á hverju ári. Þar voru þau spurð um Íslandsförina og þá sérstaklega um íslenskan mat.

„Hvað getur maður eiginlega borðað á Íslandi, jakuxa eða dádýr eða hvað?“ spurði spyrilinn Kimye á rauða dreglinum. Kim var örlítið málglaðari en Kanye og svaraði: „Hesta eða hreindýr.

Þegar spyrillinn spurði hvernig hreindýr bragðaðist eiginlega var fátt um svör hjá Kim. „Ég hélt mig við franskar kartöflur,“ sagði Kim sem þó borðaði ýmislegt annað en eingöngu franskar kartöflur líkt og Vísir greindi frá á meðan á dvöl Kardashian-föruneytisins stóð hér á landi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×