Lífið

Kim Kardashian snúin aftur á samfélagsmiðla

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Kim er komin úr felum, en hún dró sig í hlé eftir að hún var rænd í París í október síðastliðnum.
Kim er komin úr felum, en hún dró sig í hlé eftir að hún var rænd í París í október síðastliðnum. Vísir/Getty
Kim Kardashian West hefur snúið aftur á samfélagsmiðla, en hún dró sig í hlé eftir að hún var rænd í París í október síðastliðnum.

Nú er hún svo sannarlega komin úr felum og setti hún hjartnæmt fjölskyldumyndband á smáforrit sitt og fjölskyldumynd á Twitter og Instagram.

Hún hefur einnig gert myndbandið aðgengilegt á YouTube og gefur það innsýn í fjölskyldulíf hennar og eiginmanns hennar, rapparans Kanye West. Einnig má þar sjá börn þeirra, North og Saint.

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

family

A photo posted by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×