Glamour

Kim Kardashian nakin á forsíðu GQ

Ritstjórn skrifar
Kim er vægast sagt glæsileg á forsíðunni.
Kim er vægast sagt glæsileg á forsíðunni. Mynd/GQ
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian prýðir forsíðu tíu ára afmælisrits GQ. Kim deildi fréttunum með aðdáendum sínum í gær á afmælisdegi dóttur sinnar, North West. 

Myndirnar eru teknar af Mert Alas og Marcus Piggot en þeir eru eitt þekktasta ljósmyndara teymi í tískuheiminum í dag. 

Þetta er í fyrsta skiptið sem að Kim situr fyrir á forsíðu GQ en það er óhætt að segja að hún hafi líklega verið á forsíðu flestra annara tímarita, meðal annars Vogue. Kim segir það vera mikinn heiður að fá að sitja fyrir á forsíðu afmælisritsins.

Á myndunum í blaðinu er Kim léttklædd eða nakin en það er engum blöðum um það að fletta að hún er ekki feimin við það. Hún er örugg í eigin skinni og það skín í gegn á myndunum og kemur afar vel út. 

Myndirnar úr blaðinu er hægt að sjá hér. 






×