Lífið

Kíkt á stærstu upphandleggi landsins

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nú er komið að þriðja þætti af EA Fitness hér á Lífinu á Visir.is með þeim Antoni og Elmu.

Að þessu sinni fara Anton og Elma yfir bakæfingu eins og hún gerist best. Þá er einnig kíkt á stærstu upphandleggi landsins og farið yfir svindlmáltíð vikunnar. Síðast en ekki síst er Einarshornið á sínum stað.

Elma Grettisdóttir er með menntun frá World Class-skólanum og í Stott Pilates. Hún hefur unnið sem einkaþjálfari í mörg ár og er þjálfunin ekki bara vinna fyrir henni heldur einnig áhugamál. Hún býður uppá einkaþjálfun í World Class sem og fjarþjálfun.  

Anton Rúnarsson hefur unnið sem einka- og fjarþjálfari í meira en tíu ár. „Að aðstoða fólk við að koma sér í form og læra að halda sér í formi er það sem ég geri, megrun er ekki í mínum orðaforða heldur lífsstíll. Að endurstilla hugarfarið til að lifa heilbrigðum lífsstíl,“ segir Anton. Hann er menntaður einkaþjálfari frá World Class-skólanum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×