Lífið

Kidman vill fjögur í viðbót

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Kidman leggur mikla vinnu í hjónabandið.
Kidman leggur mikla vinnu í hjónabandið. mynd/getty
Leikkonan Nicole Kidman sem gift er ástralska kántrísöngvaranum Keith Urban sagði í viðtali á dögunum að ef mögulegt væri gæti hún vel hugsað sér að eignast fjögur börn til viðbótar.

Saman eiga Kidman og Urban tvær dætur, en Kidman á einnig tvö börn frá fyrra hjónabandi sínu með Tom Cruise.

Hjónaband Kidman og Urbans hefur verið farsælt á Hollywood mælikvarða en þau fögnuðu átta ára brúðkaupsafmæli fyrr á árinu.

Leikkonan segir þau hjónakornin ástfangnari en aldrei fyrr og segir farsæld hjónabandsins mega rekja til þess að þau leggi mikla vinnu í að rækta sambandið og halda því nánu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×