Lífið

Khloe og Corden neituðu að svara vandræðalegum spurningum og borðuðu fiskauga og fuglalappir

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frekar ógeðslegt.
Frekar ógeðslegt. Vísir
Þáttastjórnandinn James Corden hefur einstak lag á því að fá gesti sína til þess að tala. Í síðasta þætti fór hann hins vegar skrefinu lengra og spilaði leik með Khloe Kardashian þar sem valið var einfalt: Svara vandræðalegri spurningu eða borða ógeðslegan mat.

Á boðstólnum var meðal annars munnvatn úr fugli, fiskauga, fuglalappir og þúsund ára gamalt egg og gæddu þau sér á góðgætinu til þess að koma sér undan því að svara erfiðum spurningum.

Corden spurði Khloe meðal annars hvort að Khloe teldi að O.J. Simpson hefði myrt eiginkonu sína og vin hennar á níunda áratugnum en faðir Khloe var náinn vinur O.J. og einn af lögfræðingum hans í réttarhöldunum sem fylgdu. Khloe neitaði að svara og var ekki lengi að gæða sér á fiskauga.

Corden sjálfur neitaði einnig að svara einni spurningu um hver væri versti söngvarinn sem mætt hefði í Carpool Kareoke hjá Corden. Þáttastjórnandinn íhugaði að svara spurningunni en ákvað frekar að snara í sig fuglslöpp. Innslagið allt má sjá í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×