Innlent

Kettir drepast á dularfullan hátt

Svo virðist sem einhver geri sér að leik að eitra fyrir köttum í Hafnarfirði.
Svo virðist sem einhver geri sér að leik að eitra fyrir köttum í Hafnarfirði. vísir/getty
Undanfarna viku hafa þrír kettir verið lagðir inn á Dýraspítalann í Garðabæ. „Enginn kattanna lifði því miður af,“ segir Hanna M. Arnórsdóttir dýralæknir. Starfsmenn dýraspítalans grunar að frostlagareitrun hafi dregið kettina til dauða.

Vefjasýni úr einum kattanna hafa verið send til rannsóknar til að fá úr því skorið hvernig dauðanum bar að garði. Kettirnir þrír áttu það allir sameiginlegt að búa nærri Hellisgerði í Hafnarfirði. Það gefur til kynna að mögulega hafi verið eitrað fyrir köttunum.

Frostlögur er baneitraður köttum. Starfsmenn dýraspítalans segja að koma þurfi ketti sem neytt hefur frostlagar á dýraspítala strax. Líði meira en þrír tímar frá neyslu eru litlar líkur á því að hægt sé að bjarga kettinum. Eitrunin er köttum mjög kvalafull. Kötturinn kastar ítrekað upp og missir alla matarlyst. Hann verður mjög máttfarinn og fellur loks í dá áður en hann drepst.

Á síðustu árum hafa fjölmargir kettir dáið með grunsamlegum hætti. Í fyrrasumar lék grunur á að eitrað hefði verið fyrir sex köttum í Hveragerði með frostlegi. Nærri húsi eiganda eins kattarins sem drapst fannst blátt fiskflak. Nú í sumar fundust tveir kettir til viðbótar í Hveragerði sem grunur er um að hafi verið eitrað fyrir. Sömu sögu er að segja frá Sandgerði. Þar hafa um tíu kettir drepist á síðustu tveimur árum.

Leiki grunur á að dýr hafi verið beitt illri meðferð ber skylda til að tilkynna það til Umhverfisstofnunar, héraðsdýralæknis eða lögreglu samkvæmt dýraverndarlögum. Starfsmenn dýraspítalans vonast til þess að ekki hafi verið vísvitandi eitrað fyrir köttunum en ætla að fylgja málinu eftir eins og svo sé. Þeir hafa því tilkynnt málin til héraðsdýralæknis suðvesturumdæmis.

Stórfelld brot gegn dýraverndarlögum geta varðað allt að tveggja ára fangelsi.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×