Lífið samstarf

Keppt um bestu jólasmákökuna

Kökusamkeppni KORNAX fer fram 9. nóvember.
Kökusamkeppni KORNAX fer fram 9. nóvember.
Smákökusamkppni KORNAX verður haldin 9. nóvember 2016. Vinningshafinn hlýtur m.a. glæsilega KitchenAid hrærivél

Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jólanna síðastliðin ár. Þá keppa áhugabakarar um bestu jólasmákökuna sem inniheldur bæði KORNAX hveiti og vöru/vörur frá Nóa Síríus og hljóta vinningshafarnir glæsileg verðlaun. 

Keppnin fer svona fram:

Kökunum skal skilað inn eigi síðar en 8. nóvember 2016 fyrir kl. 16:00 á skrifstofu KORNAX að Brúarvogi 1-3, 104 Reykjavík. Að sjálfsögðu má senda smákökurnar með pósti eða koma með þær fyrr. 

Dæmt verður eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn séu einsleit og vel unnin. Senda skal u.þ.b. 15 smákökur í gegnsæju íláti, krukku eða plastpoka merktum með dulnefni. Miða skal við að smákökurnar séu ekki mikið stærri en 5 cm í þvermál.

Rétt nafn, símanúmer og uppskrift skal látin fylgja með í lokuðu umslagi merktu sama dulnefni. Hver þátttakandi má einungis senda eina kökutegund.

1. verðlaun eru KitchenAid hrærivél frá Einari Farestveit, út að borða að verðmæti 30.000 krónur hjá Argentínu steikhús, gisting í 2ja manna herbergi ásamt morgunverði á Hótel Selfossi, 40.000 króna inneign í Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn og glæsileg gjafakarfa frá Nóa Síríus.

2. verðlaun eru jólahlaðborð fyrir tvo á Argentínu steikhús að andvirði, 30.000 króna inneign í Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn og glæsileg gjafakarfa frá Nóa Síríus.

3. verðlaun eru 20.000 króna inneign í Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn og glæsileg gjafakarfa frá Nóa Síríus.

Dómarar í keppninni í ár eru Eva Laufey Kjaran matarbloggari og þáttastjórnandi, Axel Þorsteinsson konditor, Albert Eiríksson matarbloggari og ástríðukokkur og Auðjón Guðmundsson vörumerkjastjóri hjá Nóa Síríus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×