Glamour

Kendall veltir Gisele af toppnum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Brasilíska fyrirsætan Gisele Bundchen hefur trónað á toppi Forbes listans síðaustu ár yfir tekjuhæstu fyrirsætur í heimi en í ár er breyting þar á. Kendall Jenner er kominn á toppinn með um 22 milljónir bandaríkjadala í laun á síðasta ári. 

Gisele sígur samt ekki neðar en í annað sæti með litlar 17.5 milljónir bandaríkadala í tekjur. 

Meðal þeirra sem eru á topp 10 lista Forbes eru Chrissy Teigen, Adriana Lima, Gigi Hadid, Rosie Huntington - Whiteley, Karlie Kloss, Bella Hadid og svo er einkar ánægjulegt að sjá Ashley Graham í tíunda sæti en það er í fyrsta sinn sem fyrirsæta í svokallaðri yfirstærð (sem er auðvitað engin yfirstærð) nær að komast svo langt. 

Hér má sjá toppp 10 lista Forbes yfir tekjuhæstu fyrirsætur í heimi: 

1. Kendall Jenner -  22 milljónir dollara

2. Gisele Bundchen - 17.5 milljónir dollara

3. Chrissy Teigen - 13.5 milljónir dollara

4. Adriana Lima - 10.5 milljónir dollara

5. Gigi Hadid - 9.5 milljónir dollara

6. Rosie Huntington-Whiteley - 9.5 milljónir dollara

7. Karlie Kloss - 9 milljónir dollara

8. Liu Wen - 6.5 milljónir dollara

9. Bella Hadid - 6 milljónir dollara

10. Ashley Graham -  5.5 milljónir dollara



Kendall Jenner
Gisele Bundchen
Ashley Graham.





×