Tónlist

Keith Richards hraunar yfir þungarokk og rapp

Birgir Olgeirsson skrifar
Keith Richards.
Keith Richards. Vísir/Getty
Keith Richards, gítarleikari The Rolling Stones, er hvorki hrifinn af þungarokki eða rappi. Þetta segir hann í viðtali við The New York Daily News þar sem minnst er á í upphafi þess að sumir haldi því fram að rokkið sé dautt. Richards er hins vegar á því að það hafi alltaf verið dautt.

„Það er eins og daufur dynkur fyrir mér. Flest bönd eru alveg hætt öllum áherslutilfærslum. Þetta er bara endalaust hnoð, engin upplyfting, engar áherslubreytingar.“

Hann er minna hrifinn af þungarokki. „Milljónir elska Metallica og Black Sabbath. Mér fannst þetta bara vera góður brandari.“ Og rapptónlistin fær einnig á baukinn frá gítarleikaranum. „Það er svolítið tilkomumikið hvað rappið gerði því það sýndi fram á að það er mikið af tóndaufu fólki til. Eina sem það þarf er trommutaktur og einhver að öskra yfir taktinn og allir eru ánægðir. Það er risamarkaður fyrir fólk sem getur ekki greint nótur.“

Richards er nú að kynna nýjustu sólóplötu sína, Crosseyed Heart, sem er væntanleg í verslanir 18. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×