Fótbolti

Keane um Keane: Hann er ekki með barnið á brjósti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Keane lék á sínum tíma 67 landsleiki fyrir Írland.
Keane lék á sínum tíma 67 landsleiki fyrir Írland. vísir/getty
Roy Keane fékk viðstadda fjölmiðlamenn til að skella upp úr á æfingu írska landsliðsins í dag.

Keane var þá spurður hvort Robbie Keane, markahæsti leikmaður Írlands frá upphafi, yrði með landsliðinu í leiknum gegn Þýskalandi á fimmtudaginn en kona hans eignaðist barn í gær.

Það stóð ekki á svari hjá Keane, sem er aðstoðarþjálfari írska landsliðsins.

„Já, af hverju ætti hann ekki að vera með? Hann fæddi ekki barnið. Hann ætti ná leiknum nema hann sé með barnið á brjósti.“

Írar eru í ágætis stöðu í D-riðli, með 15 stig í 3. sæti, fjórum stigum á undan Skotum sem eru í 4. sæti. Þriðja sætið gefur annað hvort sæti beint á EM 2016 eða í umspili um sæti í lokakeppninni.

Sem áður sagði mæta Írar Þjóðverjum í Dublin á fimmtudaginn en þeir sækja svo Pólverja heim í lokaleik sínum í riðlinum á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×