Fótbolti

Kaup Bayern á Costa klár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Costa varð fimm sinnum úkraínskur meistari með Shakhtar Donetsk.
Costa varð fimm sinnum úkraínskur meistari með Shakhtar Donetsk. vísir/getty
Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa gengið frá kaupunum á Brasilíumanninum Douglas Costa frá Shakhtar Donetsk.

Bayern pungaði út rúmum 30 milljónum evra fyrir Costa sem skrifaði undir fimm ára samning við þýska liðið.

Costa, sem verður 25 ára í september, varð fimm sinnum úkraínskur meistari með Shakhtar og þrívegis bikarmeistari.

Costa var úthlutað treyju númer 11 en hann mætir til æfinga hjá Bayern 11. júlí.

Undirbúningstímabilið hjá Bayern hefst í dag en Costa fær lengra frí þar sem hann spilaði með Brasilíu í Suður-Ameríkukeppninni. Brasilíska liðið féll úr leik fyrir Paragvæ í 8-liða úrslitunum eftir vítakeppni en Costa var einn þeirra sem brenndi af víti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×