Innlent

Katrín um ákvörðun kjararáðs: „Þetta eru mjög miklar hækkanir“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna. vísir/hanna
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir launahækkanir kjararáðs til þingmanna, ráðherra og forseta Íslands mjög miklar. Þessir hópar eigi ekki að vera leiðandi í launum í landinu heldur að fylgja almennri þróun launa á vinnumarkaði en nýjasta launahækkun þessa hóps nemur 45 prósentum og er því langt umfram launahækkanir á almennum vinnumarkaði.

„Það er auðvitað mikilvægt að þeir sem heyri undir kjararáð séu ekki launaleiðandi. Þetta eru mjög miklar hækkanir og það væri eðlilegt að þetta fylgdi almennri launaþróun í landinu,“ segir Katrín í samtali við Vísi.

Hún segir að fara þurfi yfir fyrirkomulagið varðandi ákvarðanir kjararáðs og bendir á að vinna við það hafi hafist á lokametrum seinasta þings en ekki hafi tekist að ljúka við það. Þannig þurfi að fækka fólki sem heyri undir kjararáð, endurskipa eigi skipan ráðsins og setja einhver skýr og gagnsæ viðmið þannig að þróun launanna sé ekki með þessum hætti.

Sjá einnig: Óttarr um ákvörðun kjararáðs: „Ótrúlegar hækkanir“

Mikið hefur verið talað um að hér þurfi að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og má því spyrja sig hvort að þessi mikla launahækkun setji hann í uppnám.

„Við höfum einmitt talað fyrir því að til þess að auka jöfnuð í samfélaginu þá þarf að setja sérstakt hátekjuþrep í skattkerfið á laun sem fara svona rúmlega yfir milljónina. Það er hluti af því að viðhalda hér efnahagslegum stöðugleika,“ segir Katrín en ef að slíkt skattþrep yrði sett á myndu laun þingmanna falla þar undir þar sem þau verða nú um 1,1 milljón á mánuði.

Aðspurð hvort að Katrín sé á leið til fundar við forsetann á Bessastöðum í dag segist hún ekki hafa fengið neitt boð um það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×