Lífið

Karlmaður eyðir 19 milljónum í að líta út eins og Kim Kardashian

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Jordan Parke telur sig vera einn stærsta aðdáanda raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og segir í samtali við breska dagblaðið The Sun að hann hafi eytt um hundrað þúsund pundum, tæplega nítján milljónum, í lýtaaðgerðir til að líta út eins og Kim. 

„Ég elska allt við Kim,“ segir Jordan sem er 23ja ára og féll fyrst fyrir Kim þegar hann horfði á þáttinn Keeping Up With the Kardashians.

„Hún er fallegasta manneskja í heimi. Húðin hennar er fullkomin, hárið hennar, allt við hana,“ bætir hann við.

Jordan tekur ekki fram hvaða aðgerðir hann hefur farið í en nokkuð ljóst er að hann hafi látið sprauta einhverjum efnum í varir sínar. Honum er sama þó fólk geri grín að útliti hans.

„Ég hlæ þegar fólk reynir að móðga mig með því að segja mér að ég sé eins og plast eða óekta. Héldu þeir að ég væri að reyna að líta náttúrulega út? Ef ég væri að reyna það myndi ég biðja um endurgreiðslu,“ segir Jordan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×