Bílar

Karllægustu bílarnir

Finnur Thorlacius skrifar
94% skráðra eigenda Lamborghini bíla eru karlmenn.
94% skráðra eigenda Lamborghini bíla eru karlmenn.
Ef rýnt er þær bílgerðir í Bandaríkjunum  sem karlar eiga fremur en konur kemur í ljós að þar eru helst rándýrir sportbílar. Sú bílgerð sem flestir karlmenn hlutfallslega eiga er Lamborghini en 93% skráðra eigenda þeirra eru karlmenn. Þessar 10 gerðir bíla tróna hæst á þessum lista.

  1. Lamborghini  93%
  2. McLaren  93%
  3. Ferrari  92%
  4. Aston Martin 88%
  5. Fisker  87%
  6. Lotus 86%
  7. Ram  84%
  8. Maserati  84%
  9. Rolls Royce  84%
  10. Tesla  83%
 

Aðeins tvær bílgerðir á þessum lista eru ekki sportbílar, Ram sem eru stórir pallbílar og Rolls Royce sem er rándýrir lúxusvagnar. Fátt kemur á óvart hvað þennan lista varðar, en konur eru afar ólíklegar til að eyða miklu fé í stöðutákn í formi bíla þeirra sem á þessum lista er.

Sannarlega höfða stórir pallbílar heldur ekki til þeirra frekar en fokdýrir og öflugir sport- og lúxusbílar. Þær eru líklegri til að kaupa hagkvæma, ódýra og sæta bíla en eyðsluháka troðna af hestöflum. Fátt lýsir ef til vill betur muninum á hugsanagangi karla og kvenna en þessi listi.

Í öðru sæti listans eru McLaren bílar en 93% skráðra eigenda þeirra eru karlar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×