Lífið

Kanye reitir vini og fjölskyldu Taylor Swift til reiði með textabroti

Birgir Olgeirsson skrifar
Kanye West og Taylor Swift á góðri stundu.
Kanye West og Taylor Swift á góðri stundu. Vísir/Getty
Rapparinn Kanye West hefur reitt fjölskyldu tónlistarkonunnar Taylor Swift með því að rappa um hana laginu Famous sem er að finna á nýjustu plötu hans The Life of Pablo.

Í laginu segist West telja líkur á að hann og Swift eigi eftir að stunda kynlíf því hann gerði hana fræga: „I feel like me and Taylor might still have sex. /Why? I made that bitch famous.“

Lagið var ný orðið opinbert þegar gagnrýnisraddir tóku að heyrast.

Bróðir Taylor Swift, Austin Swift, birti myndband á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann hendir Yeezy-strigaskóm frá Kanye West í ruslið.

Getting a head start on some spring cleaning. Here we go again.

A video posted by Austin Swift (@austinkingsleyswift) on

Ein af nánum vinkonum Taylor Swift, fyrirsætan Gigi Hadid, var viðstödd tískusýningu Kanye West í Madison Square Garden í New York í gær þar sem platan var frumflutt. Hún gaf það skýrt til kynna hvar hún stendur í þessu máli. Sagði hún viðveru hennar í gær ekki þýða að hún sé samþykk öllu því sem kemur fram í textum Kanye West.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem „samskipti“ West og Swift rata í fréttirnar en árið 2009 ruddist West upp á svið á MTV-myndbandaverðlaununum og truflaði Swift í miðri þakkarræðu hennar til að segja heiminum að tónlistarkonan Beyonce hefði átt verðlaunin skilið.

Uppfært klukkan 15:15

Kanye West hefur tjáð sig um þetta allt saman á Twitter en þar segir hann hafa spjallað við Swift fyrir útgáfu lagsins og fengið hennar leyfi. Talsmaður Taylor Swift hefur tjáð fjölmiðlum vestanhafs að þetta sé hálfur sannleikur hjá Kanye, hann hefði vissulega spjallað við Swift og hún hefði vitað af laginu, en ekki hvert innihald textans var og alls ekki lagt blessun sína á hann. 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×