Matur

Kampavínsbollakökur - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Kampavínsbollakökur

 
Kökurnar

1 1/2 bolli hveiti

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk salt

115 g mjúkt smjör

3/4 bolli sykur

2 eggjahvítur

3/4 bolli kampavín



Kremið

75 g mjúkt smjör

85 g mjúkur rjómaostur

2 bollar flórsykur

3 msk kampavín

Skraut að eigin vali



Hitið ofninn í 175°C. Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti saman og setjið skálina til hliðar. Blandið smjöri og sykri vel saman og blandið þurrefnunum og kampavíninu vel saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar í annarri skál og blandið þeim saman við varlega. Deilið deiginu niður í tólf möffinsform og bakið í 15 til 18 mínútur. Leyfið kökunum að kólna alveg áður en kremið er sett á.

Blandið smjöri og rjómaosti vel saman og bætið því næst flórsykrinum og kampavíninu saman við. Skreytið bollakökurnar og njótið.

Fengið hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×