Innlent

Kalli í Pelsinum fer í hart við skiptastjóra

Snærós Sindradóttir skrifar
Karl vill athuga hvort gengistryggt lán á eign hans, Kjarnanum á Selfossi, sé lögmætt. Kjarninn er verslunarmiðstöðin til vinstri á myndinni.
Karl vill athuga hvort gengistryggt lán á eign hans, Kjarnanum á Selfossi, sé lögmætt. Kjarninn er verslunarmiðstöðin til vinstri á myndinni. vísir/pjetur
Karl Steingrímsson, gjarnan kallaður Kalli í Pelsinum, á nú í málaferlum gegn skiptastjóra félagsins Vindasúlna ehf. sem áður var í eigu Karls. Félagið var úrskurðað gjaldþrota árið 2011 en skiptum lauk í nóvember á síðasta ári.



Ástráður Haraldsson
Málið snýst um afhendingu gagna úr skiptabúinu sem Karl telur sig eiga rétt á. Lögmaður hans, Jón Þór Ólason, segir að gögnin hafi meðal annars átt að nota til að kanna réttarstöðu Karls gagnvart Íslandsbanka. Á eign félagsins, verslunarmiðstöðinni Kjarnanum á Selfossi, hafi hvílt gengistryggt lán sem Karl vilji fá skorið úr um hvort hafi verið lögmætt.

Jón Þór segir að skiptastjóri búsins, Ástráður Haraldsson, hafi dregið og neitað að afhenda gögnin. „Þetta er bara ekkert annað en persónulegt, það er ekki hægt að sjá annað,“ segir Jón Þór.

Þá hafi Ástráður lokið skiptum á búi Vindasúlna ehf. mjög skyndilega. Með því hafi Ástráður komið í veg fyrir að hægt væri að nálgast gögnin því ekki væri hægt að gera kröfu til félags sem ekki væri til lengur.

„Hann ætlar bara að sitja á gögnunum væntanlega þangað til þetta fyrnist.“ 

Ástráður skiptastjóri segist hafa afhent þau gögn sem Karl eigi lögvarða hagsmuni af að fá fyrir löngu síðan. Jón Þór er ósammála því. „Þau gögn sem við fengum voru lítil og það var búið að ganga á eftir þeim heillengi. Það er ekki hans að meta það hvað við teljum vera nóg.“ 



Jón Þór Ólason
Ástráður hafnar jafnframt ásökunum um að hann hafi lokið skiptunum óvenju fljótt. „Þegar skiptastjóri lýkur skiptum samkvæmt gjaldþrotaskiptalögunum þarf hann að birta auglýsingu í Lögbirtingablaðinu með lögmæltum fyrirvara þar sem fram kemur að til standi að ljúka skiptum í búi. Skiptin voru framkvæmd með nákvæmlega sama hætti og í öllum öðrum búum. Það gat ég ekki gert með einhverri launung eða í flýti.“ 

Hann gefur lítið fyrir ásakanir Jóns Þórs um að hann hafi ekki skilað gögnum eftir að skiptum var lokið til Þjóðskjalasafnsins eins og lög segja til um. „Það verður auðvitað gert í þessu tilviki sem og öðrum tilvikum. En það verður ekki gert eftir einhverjum fyrirmælum frá Jóni Þór Ólasyni.“

Aðspurður hvenær gögnunum verði skilað segir Ástráður: „Það er bara ekki búið að ákveða það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×