FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 09:15

Rússneski milljarðamæringurinn ekki hættur

SPORT

Kærir Ögmundur sig einn ekki kollóttan?

Fréttablaðið Fastir pennar 28. júlí 2012 06:00
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson skrifar:
Frá siðferðilegu sjónarmiði er til lengri tíma litið brýnast að treysta lýðræðislega innviði samfélagsins og styrkja stjórnkerfið; bæta þarf viðskiptasiðferði, stjórnsiði og vinnulag, efla fagmennsku og siðferðisvitund."

Þessi setning er tekin úr lokaniðurstöðu þess hluta skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem sérstaklega fjallaði um siðferði og starfshætti í tengslum við fall bankanna 2008. Skýrslan seldist í stóru upplagi og í hana var vitnað í nokkra mánuði eins og trúarbókstaf. Síðan ekki söguna meir. Nú er eins og enginn hafi heyrt þessarar skýrslu getið og trúarhitinn er kulnaður.

Frásagnir fjölmiðla síðustu mánuði um ráðstöfun Grímsstaða á Fjöllum til fjárfestis frá Kína gefa efni til að spyrja hvort þeir hlutir eigi að ganga fram eins og sagt er. Málið er tvíþætt. Annars vegar snýst það um kaup á stóru landi. Hins vegar lítur það að áformum um atvinnusköpun. Þó að þættirnir tengist óhjákvæmilega þarf eigi að síður að svara spurningum sjálfstætt um hvorn þeirra um sig.

Hvers vegna eru reglur um fjárfestingu útlendinga á landi eins og þær eru? Er hægt að fara í kringum þær? Viljum við það? Réttlæta áform um atvinnusköpun að það sé gert? Með öðrum orðum: Getum við verið viss um að það sem hér er að gerast feli í sér bót á viðskiptasiðferði, stjórnsiðum og vinnulagi?

Má vera að í röðum valdhafa sé Ögmundur Jónasson einn um að kæra sig ekki kollóttan hvernig þessum spurningum er svarað?
Leppsveitarstjórnir

Þegar sköpun nýrra atvinnutækifæra er nefnd í tengslum við þessi áform teygja menn lopann frá golfi til olíuhreinsunar. Hvort tveggja er virðingarverð starfsemi og fengur væri að erlendu fjármagni til uppbyggingar á þessum sviðum. En hvorugt þetta er kjarninn í þessari umræðu.

Fyrstu áform kínverska fjárfestisins voru þau að kaupaGrímsstaði á Fjöllum. Þá kemur í ljós að íslensk lög heimila ekki slík kaup útlendinga nema þeir búi á evrópska efnahagssvæðinu. Innanríkisráðherra getur þó veitt undanþágu frá þeirri reglu. Hann hafnaði því með rökum sínum.

Næsti leikur er að sveitarfélögin kaupi jörðina og leigi Kínverjanum. Hann greiðir leiguna fyrirfram. Sveitarstjórnir á svæðinu ætla einfaldlega að leppa kaupin til að skapa atvinnu. Þær eru leppsveitastjórnir. Er það bót á stjórnsiðum?

Skilyrðið fyrir þessu öllu saman er að iðnaðarráðherra veiti sérstaka fyrirgreiðslu sem lög heimila að hann geri þegar erlendir fjárfestar eiga í hlut. En telst það bót á stjórnsiðum að taka ákvörðun af því tagi þegar fyrir liggur að málið allt byggist á leppmennsku?
Sumir eru hlynntir olíuhreinsun. Aðrir sjá allt svart þegar hún er nefnd. Hvorugt sjónarmiðið á að ráða þegar meta á hvort fara á að lögum um erlenda fjárfestingu. Sumir hlæja þegar golfiðkun á Fjöllum er nefnd á nafn. Aðrir virða áræðið. Hvorugt sjónarmiðið á hins vegar að ráða því hvort farið er að lögum.

Hvernig eiga lögin að vera?

Öll þessi umræða vekur eðlilega þá spurningu hvort lögin um fjárfestingu útlendinga séu eins og við viljum hafa þau. Um það eru sjálfsagt skiptar skoðanir. En flestir ættu að vera sammála um að þær reglur sem gilda um útlendinga utan evrópska efnahagssvæðisins eru ófullkomnar.

Það merkilega er að hvorki ríkisstjórnin né stjórnarandstaðan hafa notað þetta mál til að kynna lagaúrbætur á þessu sviði. Trúlega einblína menn um of á þetta einstaka mál til að geta rætt almennt hvernig reglurnar eiga að vera. Þær þurfa líka að falla að stefnu okkar um samvinnu við aðrar þjóðir. Það flækir málið.

Kjarni málsins er sá að reglurnar eru of þröngar og undanþágur byggja um of á frjálsu mati eða geðþótta. Eðlilegt væri að rýmka reglurnar vegna þess að peningar utan evrópska efnahagssvæðisins eru ekki í eðli sínu verri en evrópskir. Hitt er annað að um leið væri skynsamlegt að binda erlenda fjárfestingu á landi skilyrðum um búsetu á Íslandi og að hún hafi staðið í tiltekinn tíma áður en kaup eru gerð. Jafnframt er rétt að binda þennan rétt því skilyrði að hann sé gagnkvæmur milli Íslands og þeirra ríkja sem í hlut eiga hverju sinni.
Svo eru auðvitað þeir sem eru alfarið andvígir erlendri fjárfestingu. Þeir hljóta að tefla rökum sínum fram. En hitt er óverjandi að láta löggjöfina standa óbreytta. Ábyrgðin hvílir á ríkisstjórninni.

Siðalögmál peninganna á að vera eitt og það sama hvað sem þeir heita. Peningar eru í besta falli hlutlausir gagnvart siðferði. Það er því viðfangsefni samfélagsins að ákveða eftir hvaða siðalögmálum þeir eiga að streyma. Það á ekki að vera stjórn landsins ofviða.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fastir pennar 23. maí 2013 06:00

Hrifla og heimurinn

Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja "nýja sókn í þágu lands og þjóðar“. Meira
Fastir pennar 22. maí 2013 06:00

Eru mannasiðir voðalega 2007?

Dónaskapur, illmælgi, hótanir og heimska þeirra sem virkastir eru í athugasemdum við fréttir vefmiðlanna hafa verið í sviðsljósinu undanfarið. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 09:30

Genin mín, genin þín og "tæknilæknisfræði“

Mikið hefur verið rætt um gen og áhrif þeirra á myndun sjúkdóma undanfarna daga í fjölmiðlum og sitt sýnist hverjum. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 07:00

Transfólk kemur út úr skápnum

Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 12:00

Vandinn við hvíta lygi

Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 06:00

300 ára gamlar kennsluaðferðir

Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 15:00

Selfoss og Maribo

Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 11:01

Öflugri hópur, betri fréttir

Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Júróvísa

Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Tvær frjálsar hendur, slef og tunga

Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí... Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 07:00

Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur

Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að. Meira
Fastir pennar 15. maí 2013 09:00

Stokka upp eða láta það springa?

Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums... Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:30

Blindur, brúnn og hrukkóttur

Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna. Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:15

Ofbeldi gegn ófæddum börnum

Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Valfrelsi með humrinum

Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Lækningar fremur en refsingar

Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga. Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

Sumarbústaðir þjóðarinnar

Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek... Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

45.000 fleiri í hvalaskoðun

Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik... Meira
Fastir pennar 09. maí 2013 07:00

Sveitarfélögum fækkað um 62

Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ... Meira
Fastir pennar 08. maí 2013 07:00

Tækifæri í tollalækkun

Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum... Meira
Fastir pennar 07. maí 2013 07:00

Neðrideildarleikur í Noregi

Dómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Kaupum álfinn

Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ.... Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Lærum að leika okkur

Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un... Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Umtalsverð áhætta í fjármálakerfinu

Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“ Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Huga verður að grunninum

Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Kærir Ögmundur sig einn ekki kollóttan?
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000