Lífið

Kærasta Arons Einars ratar í breska miðla

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/ instagram síða Arons Einars.
Kristbjörg Jónasdóttir hafnaði í öðru sæti á bresku fitness móti í gær.

Kristbjörg er kærasta Arons Einars Gunnarssonar, fyrirliða karlalandsliðsins í knattspyrnu og leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Cardiff, en hann birti mynd af þeim tveimur saman eftir mót á Instagram síðu sinni.

Breski miðillinn Daily Mail fjallar einnig um afrek Kristbjargar en þar kemur fram að Aron hafi tekið sér frí frá fallbaráttunni með Cardiff til að styðja kærustu sína.

Aron skrifar með mynd sinni á samskiptamiðlinum að hann sé stoltur af kærustunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×