Lífið

Kæra sig ekki um þjóðhátíð á Flatey

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Það er alltaf fjör í Flatey.
Það er alltaf fjör í Flatey. vísir/anton
Flatey á Breiðafirði er lítil og afskekkt eyja sem rúmar ekki marga gesti. Þrátt fyrir það streyma ferðamenn þangað yfir frá Stykkishólmi með ferjunni Baldri á sumrin til þess að upplifa þessa einstöku eyju sem á engan sinn líka.

Um verslunarmannahelgina var haldið lítið sveitaball en Ingibjörg Pétursdóttir, hótelstýra á Hótel Flatey, segir að ekki sé ætlunin að búa til einhvers konar hátíð.

„Það er alltaf töluvert af fólki um verslunarmannahelgina en ég held að fólk sé aðallega að sækja hingað til þess að vera í ró og næði en samt skemmta sér vel. Við erum ekkert að auglýsa dagskrána því að við viljum halda þessu litlu þar sem fólkið sem kemur hingað er ekki að leita eftir hamagangi,“ segir Ingibjörg en um helgina komu fram Sigríður Thorlacius, Gunnar Óskar og sönghópurinn Olga Vocal Ensemble.

Hótelið var opnað fyrir tíu árum en þá voru það nær eingöngu Íslendingar sem gistu þar. Nú er öldin önnur.

„Þetta hefur verið að breytast smátt og smátt. Þetta var hótel sem Íslendingar sóttu mikið í og við erum aðallega með dagskrá fyrir þá. Útlendingarnir taka ekki þátt í henni og ég man ekki eftir að hafa séð einn ferðamann á tónleikunum núna um helgina þrátt fyrir að öll herbergin hafi verið bókuð af þeim.“

Það varð svokölluð ferðamannabóla á Flatey eftir að kvikmyndin Brúðguminn eftir Baltasar Kormák kom út en hún er að mestu tekin upp þar. „Stundum komu um 300 manns á dag í dagsferð um eyjuna. Það var full mikið enda er eyjan pínu lítið og rúmar ekki marga. Í dag er ekki jafn mikið brjálæði en samt erum við með uppbókaðar gistingar nánast allt sumarið.“


Tengdar fréttir

Nýr Baldur kominn til landsins

Ný Breiðafjarðarferja, sem mun leysa Baldur af hólmi er komin til Reykjavíkur og fer væntanlega í slilpp í dag. Ferjan , sem er keypt notuð frá Noregi er breiðari og lengri en Baldur og lofthæð á bílaþilfari er meiri og í takt við nútímakröfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×