Freyr: Skammtímaverkefnið er gríðarlega spennandi
Í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld verður rætt við Frey Alexandersson, nýráðinn þjálfara belgíska úrvalsdeildarfélagsins KV Kortrijk. Þar fer Freyr yfir rússíbanareið undanfarinna vikna, ákvörðunin að halda til Kortrijk sem er í miklu basli heima fyrir þessa dagana og hefur upplifað mikinn óstöðugleika undanfarin ár.