Kvöldfréttir Stöðvar 2: „Við þurfum að fagna því að vera við sjálfar"

Fyrirsætan Maria Jimenez er frá Kólumbíu, en flutti til Íslands á unglingsaldri með móður sinni og íslenskum stjúpföður. María er ein af fyrstu kólumbísku konunum til að starfa sem fyrirsæta í yfirþyngd, en hún glímdi við átraskanir og sjálfsmorðshugsanir eftir að hafa frá barnsaldri reynt að grenna sig. Hún hefur undanfarin ár setið fyrir í ýmsum tímaritum og komið fram sjónvarpsþáttum í norður og suður-ameríku þar sem hún talar gegn staðalímyndum um líkamsstærðir. Hún hefur líka haldið fyrirlestra gegn fordómum og einelti í skólum í Kólumbíu. Ítarlegt viðtal við Maríu Jimenez verður í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld, sem hefjast að vanda á slaginu 18.30

1586
00:34

Vinsælt í flokknum Fréttir