Ísland Got Talent - Alda Dís er náttúrulega stórkostleg söngkona

Alda Dís Arnardóttir, söngkonan 22 ára frá Hellissandi, var sú fyrsta til þess að tryggja sér sæti í úrslitum Ísland Got Talent en hún komst upp úr fyrsta undanúrslitakvöldi þáttarins af þremur í kvöld. Alda Dís vakti mikla athygli þegar hún kom fyrst fram í þáttunum sökum söngraddar sinnar og fór svo að Þorgerður Katrín þrýsti á gullhnappinn. Alda Dís komst því beint í undanúrslitin. Í kvöld var atriði hennar efst í símakosningu.

15603
01:58

Vinsælt í flokknum Ísland Got Talent