Blessa gæludýrin á degi heilags Antoníusar

Löng röð gæludýra og eigenda þeirra myndaðist við kirkju heilags Antoníusar í Madríd í dag. Heilagur Antoníus er verndari dýra í kaþólskum sið. Antoníusarmessa er í dag og af því tilefni koma eigendur með dýrin í kirkju þar sem séra Angel og aðrir prestar veita dýrunum blessun með heilögu vatni. Blessuninni er ætlað að færa dýrunum velfarnað og góða heilsu í heilt ár en margir mæta árlega.

9
00:54

Vinsælt í flokknum Fréttir