Umfangsmikilli leit hátt í eitt hundrað sjálfboðaliða í Dyflinni

Fjöldi vísbendinga hefur borist um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í umfangsmikilli leit hátt í eitt hundrað sjálfboðaliða í Dyflinni í dag. Þetta eru vísbendingar sem gætu hugsanlega varpað ljósi á ferðir hans eftir að hann hverfur úr öryggismyndavélum. Utanríkisráðuneytið hefur vakið máls við írsk yfirvöld á hugsanlegri aðkomu írskra björgunarsveita og er fjölskyldan vongóð um að að henni verði. Þá starfa íslensk og írsk lögregluyfirvöld náið saman.

101
02:45

Vinsælt í flokknum Fréttir