Fótbolti

Jón Daði og félagar náðu í stig gegn næstefsta liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði og félagar eru að klífa upp töfluna.
Jón Daði og félagar eru að klífa upp töfluna. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn þegar Kaiserslautern gerði 1-1 jafntefli við Leipzig á heimavelli í þýsku B-deildinni í fótbolta í kvöld.

Jón Daði og félagar eru ósigraðir í síðustu fjórum leikjum en Kaiserslautern er í 11. sæti deildarinnar með 39 stig eftir 31 umferð.

Emil Forsberg kom Leipzig, sem situr í 2. sæti deildarinnar, yfir á 56. mínútu en Kacper Przybylko tryggði Kaiserslautern stig þegar hann jafnaði metin sjö mínútum fyrir leikslok.

Jón Daði hefur leikið 12 deildarleiki með Kaiserslautern og skorað tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×