Fótbolti

Jón Daði: Gaman að vera með Eiði Smára í þessum hóp

Óskar Ófeigur Jónsson í Astana skrifar
Jón Daði Böðvarsson hefur spilað frábærlega með landsliðinu í undankeppni EM 2016.
Jón Daði Böðvarsson hefur spilað frábærlega með landsliðinu í undankeppni EM 2016. vísir/getty
Samkeppnin fyrir Jón Daða Böðvarsson og aðra sóknarmenn íslenska landsliðsins minnkaði ekki þegar Eiður Smári Guðjohnsen snéri aftur í íslenska landsliðið.

 

„Þetta var langt ferðalag og nú er spennandi leikur framundan. Þetta verður svolítið öðruvísi leikur en við höfum verið að spila. Í síðustu leikjum á móti Hollandi, Tékkum og Tyrkjum höfum við þurft að liggja aðeins aftar og bíða aðeins eftir þeim," sagði Jón Daði og bætti við:

 

„Nú erum við að mæta liði sem við ættum kannski að geta pressað aðeins framar á vellinum. Við eigum eftir að komast miklu betur inn í það í kvöld," sagði Jón Daði og vísar þar í fund með þjálfurunum.

 

Kroppurinn í góðu standi

„Við vitum að almenningur vill fá góð úrslit úr þessum leik alveg eins og við sjálfir. Við erum tibúnir í þá pressu. Þótt að við séum sterkari á blaði þó vitum við það allir saman að það er ekkert gefið í þessu. Þetta verður gífurlega erfitt verkefni," sagði Jón Daði.

 

Jón Daði Böðvarsson hefur verið í byrjunarliði Íslands í fyrstu fjórum leikjum undankeppninnar en hann er að spila í Noregi þar sem tímabilið er ekki byrjað. Hefur hann áhyggjur af því?

 

„Ég er ekki búinn að vera mikið að pæla í því. Sjálfur er ég í toppstandi finnst mér. Við erum búnir að vera að spila mikið af æfingleikjum. Kroppurinn og formið er því fínt," sagði Jón Daði en hvað segir hann um að fá Eið Smára Guðjohnsen aftur inn.

Blaðamenn í Kasakstan vildu ólmir mynda sig með Eiði Smára í morgun.Vísir/ÓskarÓ
Eiður er algjör goðsögn

„Það er bara jákvætt að það sé mikil samkeppni. Það er frábært að fá Eið aftur inn með hans reynslu, hæfileika og allan pakkann. Hann er algjör goðsögn á Íslandi og það er gaman að vera með honum í þessum hóp," sagði Jón Daði.

 

Jón Daði kvartar ekki yfir aðstæðum íslenska liðsins í Astana, höfuðborg Kasakstan.

 

„Hótelið er fínt og það er vel hugsað um okkur. Maturinn er flottur sem og rúmin og allur pakkinn. Þetta er notalegt. Þegar maður er í svona verkefnum þá er þetta mikið hótellíf, rólegheit og menn hugsa aðallega um að hvíla sig. Við erum því ekki mikið að fara frá hótelinu," sagði Jón Daði.

 

Aron fékk svakalega tertu

Íslenski hópurinn var með sérstaka athöfn fyrir nýjasta pabbann í hópnum í gærkvöldi en Aron Einar Gunnarsson var faðir í fyrsta sinn skömmu eftir að hann kom út til Kasakstan.

 

„Það var flott. Hann fékk þessa svakalega flottu tertu og góðan söng frá Togga og félögum. Það voru æðislegar fréttir fyrir hann. Hann hefði að sjálfsögðu viljað vera við fæðinguna en sýnir bara hvað hann fórnar sér fyrir landsliðið. Þetta er frábært fyrir okkur að hafa hann hér og æðislegar fréttir fyrir hann að vera orðinn pabbi," sagði Jón Daði.

 

En hvað þarf að ganga upp hjá íslenska liðinu í leiknum á móti Kasakstan á morgun?

 

„Við þurfum að byrja grimmir frá fyrstu mínútu í leiknum og gefa ekki neitt eftir. Við þurfum að sýna að við viljum vinna þennan leik frá fyrstu mínútu. Vonandi gengur það eftir," sagði Jón Daði að lokum.


Tengdar fréttir

Strákarnir sungu fyrir Aron og færðu honum köku

„Það var samt jafnframt erfitt að sætta sig við það að missa af þessu því auðvitað vildi ég vera þarna þegar sá litli fæddist,“ sagði Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×