Innlent

Jón áfram forstjóri Matvælastofnunar

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Gíslason.
Jón Gíslason.
Jón Gíslason hefur verið skipaður forstjóri Matvælastofnunar til næstu fimm ára. Jón hefur gegnt starfi forstjóra Matvælastofnunar frá því að hún var sett á laggirnar árið 2007.

Starf forstjóra Matvælastofnunar var auglýst 6. maí síðastliðinn og sóttu níu einstaklingar um starfið.

Sérstök hæfisnefnd lagði mat á umsækjendur og gerði tillögu til sjávar- og landbúnaðarráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×