Lífið

Jólalestin á ferðinni í 19. sinn

Jólaskreyttir Coca-Cola trukkar Vífilfells halda á morgun, laugardag, í sína árlegu ferð um höfuðborgarsvæðið.Jólalestin heldur af stað frá Stuðlahálsi kl. 16 og mun ferðast um helstu hverfi höfuðborgarsvæðisins en hápunktinum er náð um kl. 17 þegar hersingin ekur niður Laugaveginn.

Áætlað er að um 15.000 manns fylgist með lestinni ár hvert og búist er við svipuðum fjölda í ár þegar lestin fer í sína nítjándu ferð.

Tveir kílómetrar af ljósaseríum

Jólalestin samanstendur af fimm stórum flutningabílum sem skreyttir eru með rúmlega tveimur kílómetrum af ljósaseríum. Það tekur starfsmenn Vífilfells yfir 10 klukkutíma að skreyta bílana. Jólalestin spilar þekkt jólalög á ferð sinni um borgina og til þess að lögin fái örugglega að njóta sín er notað sama hljóðkerfi og á stórtónleikum í Laugardalshöll.

Jólalestin fær lögreglufylgd og björgunarsveitarmenn munu ganga meðfram henni við stærstu verslunarkjarna og á Laugaveginum , til að draga úr slysahættu.

Gleðja börnin

Jólalestin mun hvergi stoppa nema stuttlega í Spönginni í Grafarvogi um kl. 16:30 og við Smáralind upp úr kl. 18. Þá verður Jólalestin stöðvuð við Barnaspítala Hringsins þar sem jólasveinninn mun líta inn til barnanna og færa þeim gjafir.

Nánari leiðarlýsingu Jólalestarinnar er að finna á coke.is en þar er hægt að fylgjast með á korti hvar lestin er stödd hverju sinni, auk þess sem hægt er að horfa á beina útsendingu frá för hennar um bæinn. Fólk getur smellt myndum af jólalestinni og merkt þær #jolalestin. Þeir sem taka skemmtilegustu myndirnar fá verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×