Jól

Jóladagatal - 10. desember - Heimatilbúinn jólagjafapappír

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í dag eru sléttar tvær vikur til jóla. Það eru því flestir farnir að huga að jólagjöfum og einhverjir jafnvel búnir að kaupa þær allar. Í dag ætla þau Hurðaskellir og Skjóða að pakka inn jólagjöfum í gjafapappír sem þau föndra sjálf.

Klippa: 10. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×