Gagnrýni

John Grant á Iceland Airwaves: Stórkostlegur sögumaður

John Grant. Norðurljós í Hörpu.



John Grant var ekkert að klæða sig upp fyrir tónleika sína í Hörpu. Hann settist fyrir framan flygilinn með lopahúfu á hausnum og hamraði inn æðislegar melódíur í tæpan klukkutíma.

Grant er frábær sögumaður og sýndi fimi sína milli laga. Sagði frá erfiðum uppvaxtarárum, en hann uppgvötaði mjög snemma að hann er hommi og taldi lengi að það væri synd. Lög eins og Sigourney Weaver hljómuðu stórkostlega og frábærir textarnir nutu sín vel. Einlægni John Grant og áhrif eru svo yfirþyrmandi að ég heyrði að ungum manni sem fór á tónleika hans á Kexi og gat ekki stillt sig um að hringja í móður sína og segja henni að hann elskaði hana þegar flutningurinn stóð sem hæst.

Hann endaði tónleikana á því að lýsa yfir löngun sinni til að heimsækja landið á ný. Ég vona að hann geri það fyrst, enda voru tónleikarnir óaðfinnanlegir. - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×