Innlent

Jesús ríður inn í Jerúsalem í hestamessu í Kjósinni

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Séra Anra Grétarsdóttir.
Séra Anra Grétarsdóttir. Fréttablaðið/Valli
„Eitt það fyrsta sem mér var sagt er að hestamessann sé eitthvað sem fólk hefur saknað,“ segir séra Arna Grétarsdóttir sem í byrjun júlí tók við sem sóknar­prestur á Reynivöllum í Kjós.

Næsta sunnudag verður svokölluð hestamessa endurvakin í Reynivallakirkju. Þá eru messugestir hvattir til að koma ríðandi til guðsþjónustu.

Arna segir að séra Gunnar Kristjánsson, sem áður var á Reynivöllum, hafi komið hestamessunni á og hún hafi verið við lýði á meðan hann þjónaði. Gunnar hafi hætt 2014 og hestamessan hafi þá lagst af í bili. Mikið sé af hestafólki í sveitinni.

Hestamessur voru árlegur viðburður um verslunarmannahelgar í um áratug í embættistíð séra Gunnars Kristánssonar. Fréttablaðið/Stefán
„Fólk saknar þessarar messu. Það er stemning að koma ríðandi til kirkju og drekka kaffi í garðinum við prestsbústaðinn,“ segir séra Arna sem ásamt fjölskyldu sinni býður til samsætis eftir hestamessuna.

Aðspurð segist séra Arna ekki sjálf vera hestamanneskja og muni ekki ríða til kirkju. „Nei, ég bara messa og þjóna fólkinu,“ svarar sóknarpresturinn hlæjandi.

Séra Arna segist ekki geta giskað á hversu margir muni mæta í hestamessuna. „Kannski koma þrjátíu til fimmtíu eða jafnvel hundrað, kirkjan tekur ekki mikið meira,“ segir hún.

Áður en séra Arna tók við embættinu á Reynivöllum var hún prestur Íslendinga í Noregi í níu ár. Svo vill til að hestamessan er jafnframt fyrsta guðsþjónusta séra Örnu á nýja staðnum.

„Texti dagsins er skemmtilegur og dálítið táknrænn. Textinn er um það þegar Jesús kemur ríðandi inn í Jerúsalem og hann grætur yfir borginni og fólkinu; yfir erfiðleikunum og óréttlætinu,“ segir séra Arna Grétarsdóttir spurð um það hvað hún muni segja við söfnuð sinn á Reynivöllum á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×