Tónlist

Jason Mraz heldur tónleika á Íslandi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Jason Mraz vildi ólmur koma til landsins, segir Guðbjartur.
Jason Mraz vildi ólmur koma til landsins, segir Guðbjartur. vísir/afp
Söngvarinn hugljúfi Jason Mraz er á leið til landsins og verður með tónleika í Eldborgarsal Hörpu hinn 1. apríl næstkomandi. Hann hyggst aðeins halda þessa einu tónleika hér á landi og verður opnað fyrir miðasölu næstkomandi miðvikudag.

Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari segir að um verði að ræða sólótónleika sem séu hluti af tónleikaferðalagi Mraz, þar sem Mraz mætir einn með gítarinn sinn.

„Þetta er í raun bara nýtilkomið. Ég fór að skoða þetta aðeins og tala við umboðsmennina og Mraz virtist ólmur vilja koma til landsins. Ég fékk svo bara tölvupóst fyrir stuttu og þá var þetta ákveðið,“ segir Guðbjartur í samtali við Vísi.

Jason Mraz hefur hlotið demants-, platínu og gullplötur í meira en 20 löndum og eru hans vinsælustu lög „I‘m yours“ og „I won‘t give up“. Þá hefur hann hlotið tvö Grammy verðlaun og fleiri tilnefningar.

Miðaverð verður frá 5.900 krónum upp í 10.900 krónur, en nánari upplýsingar eru að finna á vef Hörpu. Opnað verður fyrir miðasölu klukkan tíu á miðvikudagsmorgun, 15. febrúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×