Innlent

Jarðvegur víða gljúpur á hálendinu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ekki er hægt að ganga að því vísu að öruggt sé að ferðast um hálendið þrátt fyrir að heitara sé í veðri.
Ekki er hægt að ganga að því vísu að öruggt sé að ferðast um hálendið þrátt fyrir að heitara sé í veðri. Vísir/Vilhelm
Vegagerðin brýnir fyrir þeim ferðalöngum sem hyggjast halda upp á hálendið að mikilvægt sé að kynna sér vel aðstæður áður en haldið er af stað. Í tilkynningu kemur fram að nú sé að hlána og því sé jarðvegur víða gljúpur.

„Vegslóðar á hálendinu eru afar viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð og í verndarskyni er akstursbann á mörgum hálendisvegum. Þeir sem hafa hug á að aka inn á hálendi eru beðnir að kynna sér vel hvert hægt er að fara og hvar akstur er óheimill,“ segir í tilkynningu.

Hér er hægt að fylgjast með færð á vegum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×