Fótbolti

Jafnt hjá Brann í fyrri leiknum í umspilinu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Birkir fer frá Brann hvernig sem gengur í umspilinu
Birkir fer frá Brann hvernig sem gengur í umspilinu vísir/daníel
Brann gerði 1-1 jafntefli við Mjöndalená heimavelli í umspilinu um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta á næstu leiktíð.

Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn í vörn Brann sem hafnaði í 14. sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en Mjöndalen varð í þriðja sæti fyrstu deildar.

Mjöndalen komst yfir seint í fyrri hálfleik en Brann jafnaði metin snemma í seinni hálfleik og þar við sat.

Úrslitin um hvort liðið leikur í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð ráðast í seinni leiknum á miðvikudagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×