Lífið

Jaden Smith mætti í pilsi á lokaballið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Amanda Stenberg og Jaden Smith
Amanda Stenberg og Jaden Smith vísir/twitter
Jaden Smith mætti í pilsi á lokaballið í skólanum sínum á dögunum en hann er sonur Will Smith og Jada Pinkett Smith sem eru bæði heimsþekktir leikarar.

Amanda Stenberg, sem fer með stórt hlutverk í myndunum Hunger Games, fór með honum á ballið.

Mikið hefur verið fjallað um klæðaburð Jaden í fjölmiðlum vestanhafs. Hann virðist hunsa staðalímyndir kynjanna og fellur það vel í kramið hjá aðdáendum drengsins, en Jaden Smith er 16 ára.

„Fór í Topshop til að kaupa mér stelpu föt, ég meina „föt“,“ skrifaði hann á Twitter í apríl. Með færslunni birti hann mynd af sér í kjól. Hann eyddi Twitter-reikningi sínum eftir færsluna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×