Lífið

Íslendingar vitlausir í Jimmy Carr: Allir miðar seldust upp á nokkrum mínútum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jimmy Carr þykir fyndinn.
Jimmy Carr þykir fyndinn. vísir/getty
Miðasala á uppistandið Gagging Order með Jimmy Carr hófst í morgun klukkan tíu og seldust tæplega þúsund miðar sem í boði voru upp á fimm mínútum. 

Stuttu síðar fóru átta hundruð miðar á aukasýningu í sölu en þeir seldust upp á fimmtán mínútum. Sýningarnar fara fram 22. og 23. mars.

Samkvæmt tilkynningu frá Senu er ekki gert ráð fyrir fleiri sýningum en þó er verið að athuga þann möguleika þar sem ljóst er að Íslendingar elska grínistann Jimmy Carr.

Tilkynnt verður fljótlega hvort fleiri sýningar verði haldnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×