Íslendingar setji sig í spor Sýrlendinga Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 31. ágúst 2015 20:30
Sýrlenskur maður búsettur hér á landi segir mikilvægt að Íslendingar setji sig í spor Sýrlendinga, og að stjórnvöld taki á móti eins mörgum flóttafjölskyldum og hægt er. Íslensk kona sem bjó í Sýrlandi rétt fyrir stríðið segir ótrúlegt hversu mikið aðstæður í landinu hafa breyst síðan þá.Fjögur og hálft ár eru síðan blóðugt stríð hófst í Sýrlandi. Meira en helmingur þjóðarinnar, eða um tólf milljón manns, hafa þurft að yfirgefa heimili sín og eru ýmist á vergangi eða hafast við í flóttamannabúðum í slæmum aðstæðum.Björk Håkansson bjó og starfaði í höfuðborginni Damaskus á árinum 2008 til 2010. Þar segist hún hafa lifað venjulegu lífi með fjölskyldu sinni en þau fluttu frá landinu nokkrum mánuðum áður en stríðið braust út. „Það eru ekki til orð sem geta lýst því hvernig okkur leið í byrjun stríðsins í Sýrlandi í byrjun árs 2011. Við fórum allan tilfinninga og sorgarskalann og erum ennþá mjög miður okkar yfir því hvað það er lítið sem við getum gert svona langt í burtu,“ segir Björk.Tugþúsundir flóttamanna komu til Sýrlands frá nærliggjandi löndum á árunum fyrir stríð til að sækja þar um hæli, en Björk vann einmitt við flóttamannaaðstoð þar í landi. Hún segir ótrúlegt hversu hratt aðstæður hafa breyst.„Það í rauninni stendur ekki steinn yfir steini, þetta er orðið gjörólíkt land. Það hafa allir sem við þekkjum orðið fyrir einhverskonar tráma vegna þessa stríðs, allir. Þetta er bara skelfilegt,“ segir Björk. Mohammad Sami þekkir þessar aðstæður af eigin raun. Hann er fæddur og uppalinn í Damaskus í Sýrlandi en hefur verið búsettur hér á landi í þrjú ár. Hann veit ekki hvar fjölskylda hans er niðurkominn. „Flest þeirra eru nú á flótta, allir á einhvern hátt. Flestir vinir mínir eru í ýmsum löndum og bræður mínir líka. Hluti af fjölskyldunni minni er nú í hættu í Damaskus. Ég veit ekki hvort ég fæ einhvern tímann að fara aftur til Sýrlands, hvort ég hitti eitthvert þeirra aftur eða hvort ég finni húsið mitt. Ég held ekki að neinn eigi skilið svona líf,“ segir hann. Mohammad er sjálfur sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum og aðstoðar nú fjórar sýrlenskar flóttafjölskyldur sem komu hingað til lands fyrr á árinu að fóta sig í íslensku samfélagi. Hann segir að mikilvægt að íslensk stjórnvöld taki á móti eins mörgum og hægt er. „Þeir sem horfa og gera ekki neitt ættu að setja sig í þessi spor. Það er sárast að sjá börn deyja - ímyndið ykkur að þetta sé barnið ykkar. Mynduð þið taka því svona létt og horfa bara á það?,“ segir Mohammad.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira