Innlent

Íslendinga-appið kemur í veg fyrir að náskylt fólk rugli saman reytum

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Íslendingabók er nú aðgengileg í snjallsímum þökk sé þremur ungum verkfræðinemum við Háskóla Íslands.Ýmsar nýjungar eru í boði, þar á meðal ein sem kemur í veg fyrir að náskylt fólk rugli saman reytum.

Rúmlega 600 Íslendingar hafa nú þegar náð sér í forritið, sem er fyrir Android-síma, en notendur geta einfaldlega rekið saman ættir sínar með því að skella símunum saman.

Hönnuðirnir, Arnar Freyr Aðalsteinsson, Alexander Annas Helgason og Hákon Þrastar Björnsson, sem urðu hlutskarpastir í samkeppni Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar um Íslendingaapp í gær, létu sér þetta ekki nægja og bættu við sérstakri stillingu.

Og þá lætur síminn þig vita ef þið eruð of skyld til að fara heim saman, segir Arnar Freyr.

Er þörf á þessu? „Ég veit það ekki, kannski hérna heima," segir hönnuðurinn Alexander og bætir við: „Við vorum einmitt með slagorðið bömpaðu í appinu áður en þú bömpar í bólinu."

Strákarnir segjast gera sér grein fyrir því að stillingin fari fyrir brjóstið á einhverjum en bæta við að hún sé ágætlega vel falin og hægt sé að nota forritið án þess að taka nokkurn tímann eftir henni.

Við vorum að reyna að stíla á bæði yngri og eldri markaðinn. Notendur Íslendingabókar eru meira kannski eldra fólk en notendur snjallsíma yngra fólk, segir Hákon.

Í forritinu er ýmislegt annað að finna þar á meðal dagatal með afmælisdögum ættingja og skemmtilega tölfræði.

Og fyrir þessi herlegheit fengu strákarnir eina milljón króna í sigurlaun.

„Við þurfum að fara að ákveða það á næstu dögum, hvort við ætlum að nota hana saman í eitthvað t.d. eins og stofnfé í næsta verkefni eða bara skipta henni upp og nota hana til að borga reikningana," segir Hákon Þrastar Björnsson og hlær.

Hægt er að skoða appið og ná í það hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×