Tónlist

Íslandsvinurinn Albarn remixar Fufanu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Damon Albarn er alltaf hress.
Damon Albarn er alltaf hress. Vísir/Getty
Íslandsvinurinn Damon Albarn hefur alltaf í einhver horn að líta en nú hefur hann gefið út remix af laginu Ballerinas in the Rain með íslensku sveitinni Fufanu.

Fufanu og Albarn eru í ágætis sambandi endaði hitaði íslenska sveitin upp fyrir tónleika Albarn í Royal Albert Hall árið 2014. Í fyrra hitaði sveitin einnig upp fyrir Blur, hljómsveit Albarn, á tónleikum sveitarinnar í Hyde Park í London.

Þá aðstoðaði Kaktus Einarsson, annar meðlima Fufanu, Albarn við gerð sóló-plötu sinnar, Everyday Robots, sem kom út árið 2014.

Ballerinas in the Rain er nýjasta smáskífa Fufanu en gítarleikari Yeah Yeah Yeah's tók upp lagið þar sem meðal annars má heyra í dj. flugvélar og geimskip.

Hlusta má á útgáfu Albarn hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fufanu spilar óvænt á Rock Werchter

Íslenska hljómsveitin Fufanu mun spila á tónlistarhátíðinni Rock Werchter en þetta kom í ljós eftir að annað band var að hætta við komu sína.

Nýtt myndband frá Fufanu: Hita upp fyrir Blur í sumar

"Myndbandið var skotið og klippt af þeim Jóni Atla og Skúla hjá Rec Studio, leikstjórnin var í höndum hljómsveitarinnar,“ segir Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, meðlimur í hljómsveitinni Fufanu um nýtt tónlistarmyndband sem sveitin var að senda frá sér. Lagið heitir Will We Last.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×