Lífið

Ísland þriðja síðasta landið til að kynna stigin

Atli Ísleifsson skrifar
Ítölsku keppendurnir í Il Volo.
Ítölsku keppendurnir í Il Volo. Vísir/AFP
Ísland verður þriðja síðasta landið til að kynna stigin úr símaatkvæðagreiðslu landsins í Eurovisionkeppninni í kvöld. Sigríður Halldórsdóttir, fréttakona á RÚV, mun kynna stigin fyrir Íslands hönd.

Í frétt sænska ríkissjónvarpsins segir að tölva hafi raðað löndunum í röð samkvæmt reikniforskrift til að spennan verði sem mest í atkvæðagreiðslunni. Byggir það á atkvæðagreiðslu dómnefnda landanna sem þegar hafa skilað sínum niðurstöðum.

Christer Björkman, framkvæmdastjóri sænsku söngvakeppninnar, segir margar leiðir til að túlka niðurröðunina. „Besta leiðin til að túlka röðunina fyrir okkur er að þeir hafi sett tvö Norðurlönd í lokin þar sem við fáum jafnan mörg stig frá þeim. En þetta byggir bara á atkvæðum dómnefndanna. Fólkið á enn eftir að kjósa.“

Vera kann að úrslit liggi þegar fyrir þegar stig Íslands verða lesin upp, en þó kann að fara svo að spennan verði í hámarki þegar Sigríður kynnir stigin.

Stigin verða lesin upp í eftirfarandi röð:

1) Svartfjallaland

2) Malta

3) Finnland

4) Grikkland

5) Portúgal

6) Rúmenía

7) Hvíta-Rússland

8) Albanía

9) Moldóva

10) Aserbaídsjan

11) Lettland

12) Serbía

13) Eistland

14) Danmörk

15) Sviss

16) Belgía

17) Frakkland

18) Armenía

19) Írland

20) Svíþjóð

21) Þýskaland

22) Ástralía

23) Tékkland

24) Spánn

25) Austurríki

26) Makedónía

27) Slovenía

28) Ungverjaland

29) Bretland

30) Gergía

31) Litháen

32) Holland

33) Pólland

34) Ísrael

35) Rússland

36) San Marínó

37) Ítalía

38) ÍSLAND

39) Kýpur

40) Noregur


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×