Ísland í dag: Rassinn í aðalhlutverki í Mottumars Ásgeir Erlendsson skrifar 2. mars 2015 22:35
Mottumars er haldinn í sjöunda skipti í ár og eins og alltaf, snýst hann um karla og krabbamein. Það er rassinn sem er í aðalhlutverki í ár og mönnum bent á að það skipti öllu máli að huga að honum. Ásamt blöðruhálskrabbameini er lögð ríkuleg áhersla á ristilkrabbamein en gítarleikarinn Birgir Hrafnsson veit mætavel að það skiptir miklu máli að vera vakandi fyrir fyrstu einkennum þess. „Í kringum fimmtugt verð ég var við blóð í hægðum,“ segir Birgir. „Ég tengdi það svona fyrst við það að mér fannst ég vera með svona gyllinæð. Þannig ég var ekkert að gera mál úr því. En svo var þetta alltaf að pirra mig annað slagið þannig að ég ákvað að taka upp símann og hringja í meltingarsérfræðing.“ Birgir fór í ristilspeglun, þar sem fundust nokkrir separ. Þeir voru fljótt teknir í burtu en hvernig hefði farið fyrir Birgi ef hann hefði ekki farið í skoðun? „Það er talað um að separnir séu hugsanlega forstig að illkynja krabbameini. Þannig að ég væri kannski kominn undir græna torfu í dag ef ég hefði ekki farið í þessa skoðun og þessir separ fjarlægðir.“ Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, segir í Íslandi í Dag að þessi tegund krabbameins geti verið einkennalaus lengi. Því sé mikilvægt að nota þær leiðir sem eru til til að athuga hvort maður sé með þetta krabbamein: láta taka saursýni eða ræða við lækni. „Ég hafði samband við nokkra félaga mína í kjölfarið á þessu sem höfðu ekki farið í svona skoðun og sagði þeim að drífa sig í þetta,“ segir Birgir. „Gaf þeim meira að segja upp nafnið og símanúmerið á lækninum og fylgdi þessu eftir. Þetta voru kannski tíu félagar og ef ég man rétt, fundust separ hjá tveimur eða þremur.“ Það er svo landslið íslenskra leikara sem leikur í mjög skemmtilegri auglýsingu fyrir Mottumars þetta árið og var stemningin á tökustað oft og tíðum skrautleg. Svipmyndir af tökustað má sjá í innslaginu hér fyrir ofan en auglýsingin í heild sinni er í spilaranum hér fyrir neðan.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira