Fótbolti

Irina stelur nærbuxunum hans Ronaldo

Ofurpar. Þetta fólk er að gera það gott.
Ofurpar. Þetta fólk er að gera það gott. vísir/getty
Cristiano Ronaldo fékk óeðlilega spurningu frá blaðamanni Vogue á dögunum og svarið kom á óvart.

Það er margir hrifnir af CR7-nærbuxum knattspyrnukappans en að kærasta Ronaldo, fyrirsætan Irina Shayk, væri það líka kemur á óvart.

Blaðamaður Vogue spurði Ronaldo að því hverju hún stæli helst úr fataskápi hans eins og það væri alveg eðlilegt að kona stæli úr fataskápi unnusta síns.

„Hún er alltaf að stela nærbuxunum mínum. Ég kíkti einu sinni í fataskápinn hennar er hún var ekki heima og þar var allt fullt af CR7-nærbuxum. Það var mjög fyndið," sagði Ronaldo.

Parið var í myndatöku fyrir blaðið og gaf í leiðinni færi á smá viðtali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×